Monday, September 15, 2008

Fyrsta bloggið

Sælt veri fólkið,

Við heimsálfarnir, Hrafntinna, Sigurrós, Kristína, Matta, Snædís og Stella, erum við það að leggja land undir fót og halda suður á bóginn þar sem ævintýrin bíða okkar við hvert fótmál. Við munum flýja land ísa 4.nóv (en Kristína og Sigurrós mánuði fyrr 4.okt) og halda til:
London-Indlands-Nepal-Kína-Taílands-Laos-Kambódíu-Ástralíu-Nýja Sjálands-Tonga-LA-London
Við munum halda uppi foreldravænu bloggi með ritskoðuðum myndum ykkur öllum til ánægju og yndisauka.

Yfir og út,
Heimsálfar

2 comments:

Anonymous said...

Koma Svo!!

Bjarni Möttupabbi

Anonymous said...

Til hamingju, að vera sloppnir úr þessu kreppustandi á skerinu, kæru(heimskuálfar) heimsálfar, átti þetta nú að vera. Eg kannekki að að stroka út. Já, gamalt útþráarhjarta samgleðst verulega ykkur öllum. Bara, koma heilar heim og góðri og illri reynslunni ríkari. Skerið hefur ekki efni á að missa þennan blóma.Karl Möttuafi.