Sunday, October 12, 2008

Um Dalit þorpin


Kvöldskólaverkefni ABC barnahjálpar miðar að því að hjálpa vanþróaðasta hluta indverska samfélagsins þar sem börn búa à götunum og deyja úr hungri. Markmiðið er að takast á við fátæktina og ólæsið í því samfélagi þar sem stór prósenta eru kristnir sem bíða eftir hjálparhönd.

Um samfélagið: Við lifum á 21. öldinni þar sem lífsgæðin drjúpa af hverju strái. Á Indlandi ríkir hins vegar mikil stéttaskipting og þar er til samfélag á botni þjóðfélagsins sem heldur í vonina um betra líf. Fólk þessa samfélags hefur í áraraðir fengið mjög grimma og ómanneskjulega meðferð. Þetta fólk er nú kallað Dalítar eða hinir ósnertanlegu.
Dalítar eru 16% af þeim 1.2 billjónum sem búa á Indlandi í dag. Þau hafa búið við gífurlega fátækt alla tíð, allt frá því að þau fæddust inn í þetta grimma stéttarkerfi. Hindúismi hefur lengi verið hulinn vestrænu samfélagi en þegar Indland varð nýlenda Breta kom stéttarkerfið i ljós. Samkvæmt Hindúum skapaði Brahma heiminn en Dalítarnir voru ekki hluti af sköpun hans. Hann er ónæmur fyrir þörfum þeirra og því megi þau lifa af ruslinu einu saman. Þetta er afsprengi þeirrar vanþróuðu hugsunar sem enn ríkir hjá indverjum og virðist sú hugsun vera komin til að vera. Stéttaskiptingin hefur verið ríkjandi á Indlandi í meira en 3000 ár og setur enn svartan blett á indverskt samfélag. Hinar svokölluðu efri stéttir vilja ekki þurfa að líta Dalíta augum né hjálpa þeim á nokkurn hátt. Kúamissir er mikið hjartans mál fyrir öllum indverjum en andlát Dalíta þykir engu máli skipta. Hefðu Dalítar tilheyrt öðrum kynþætti en aðrar stéttir indverja hefðu þeir frekar fangað athygli umheimsins, en þar sem allir indverjar eru af sama kynþætti tekst þeim það síður.
Hvert einasta foreldri þráir betri framtíð fyrir börnin sín en peningaleysið gerir þeim mjög erfitt fyrir. Þau skortir nauðsynjar á borð við hreint vatn, mat, húsnæði og hreinlæti. Tekjur þeirra duga varla fyrir mat. Þeir samfélagshópar sem neyðast til að skríða á botni þjóðfélags síns grípa oft til örþrifaráða á borð við glæpi sem gerir hvorki þeim né þjóðfélaginu gott. Hversu lengi á þessi mismunun að vara? Munum við nokkurn tíman sjá fyrir endann á þessu?

Sýn ABC: Við vonum að sérhver móðir Dalíta-barns uppfylli drauma sína um að sjá bjartari framtíð fyrir barnið sitt. Það að afmá þann svarta blett sem lengi hefur verið á þjóðfélagskerfi Indverja tekur langan tíma en ef við höldum ótrauð áfram að stuðla að bættri framtíð Dalíta mun okkur að lokum takast það. Fyrsta og mikilvægasta verkefnið til að ná tilsettu markmiði er að koma á fót skólum. Þeir eru burðarásinn í mótun einstaklingsins en því miður er menntun ekki forgangsatriði hjá Dalítum. Þeir senda börn sín ung til vinnu fyrir lítið sem ekkert kaup. Börnin eru með öðrum orðum fórnarlömb barnaþrælkunar. En hvað geta foreldrar gert ef þeir geta ekki fætt börn sín og hvað þá menntað þau? Úrræðaleysi þeirra erfist til barnanna sem enda á götunum þar sem þau berjast fyrir lífi sínu.

Megin markmið: Verkefni ABC er að koma upp kvöldskólum þar sem börnin geta unnið heimavinnuna sína undir leiðsögn kennara og fengið mat. Kirkjur eru í öllum þorpum Indlands og umsjónarmenn kirknanna hafa boðist til þess að hjálpa til. Þeir hafa lánað okkur húsnæði undir kennsluna og lofað að hjálpa okkur að sjá um börnin eins og þeir best geta. Þótt enn sé langt í mark, er sýn ABC að ná til allra þorpanna svo öll börn megi njóta sömu réttinda og lífsgæða.

No comments: