
Þetta kort er merkt með leiðinni okkar eins og við munum ferðast í kringum hnöttinn í fjóra mánuði. Við byrjum á að fljúga frá London-Indlands og þar meðfram línunum.
Við stöllur fylgjumst að mest alla leiðina, fyrir utan þegar Kristína og Hrafntinna fara fyrr til Ástralíu (22.des) og restin af álfunum fara til Laos, Cambodiu og Thailands á meðan.
Hér eru helstu dagsetningar fyrir stóru flugin sem við erum þegar búnar að bóka:
4.okt Sigurrós og Kristína til Indlands í hjálparstarfi á Heimili Litlu Ljósana, ABC
4.nóv Hrafntinna, Stella, Snædís og Matthildur til Indlands, Delhi 10 dagar
24.nóv Frá Kathmandu (Nepal) 10 dagar, til Peking (Kína) ca. 2 vikur
8.jan Frá Bangkok (Thailand) ca. 2 og 1/2 vika, til Brisbane (Ástralía) 3 vikur
30.jan: Sydney (Ástralía) -Wellington (Nýja-Sjáland) 12 dagar
13.jan: Nýja-Sjáland- Tongatapu (lítil eyja í Kyrrahafinu) 1 og 1/2 vika
30.jan: Sydney (Ástralía) -Wellington (Nýja-Sjáland) 12 dagar
13.jan: Nýja-Sjáland- Tongatapu (lítil eyja í Kyrrahafinu) 1 og 1/2 vika
24.feb: Tonga- Los Angeles Sigurrós-Hrafntinna-Kristína verða þar í tvo daga og koma heim
27.febrúar
En Matta, Stella og Snædís stoppa ekki þar og koma heim 25.febrúar
Haldið ykkur fast!

8 comments:
Ánægð með þig Snædís! Ég er greinilega búin að smita út frá mér skipulagsgáfuna mína ;) haha...
Jahá, þokkalega! Litkóðun og læti :o) haha
"Þetta er eina leiðin" eins og Gunnar í Krossinum sagði!
vúhú..spennandi! p.s. það er bara búið að fótósjoppa mann útaf aðalmyndinni... fullgróft finnst mér.
hahah já Dagrún mín, ég fæ víst að fá að njóta þess að vera með þinn likaman á þessari mynd, alveg sátt með það ;) - Hrafntinna
Ég hins vegar fæ ekki að hafa líkama. Enda algjör óþarfi í svona langferð. Hver þarf fætur, algerlega ofmetið fyrirbæri. Hrafntinna getur bara haft mig í bakpokanum sínum, því hún er með svo flottan lánskropp ;o)
Flott framtak Snædís!!! Heyr heyr
hahaha heyr heyr Stella!Hver þarf fætur? ég bara spyr En ég trúi ekki ad þið séuð bara að fara litlu álfar..þetta hljómar ekkert smá spennandi, hlakka til að stolka síðuna every day and night! Sigurrós og Krilla fariði nú að láta heyra í ykkur í Indlandinu:)
Post a Comment