Tha hofum vid Stella kvatt paradisareyjuna Phi Phi med gledi i hjarta og kofunarprof i vasanum. Matta nadi ser reyndar lika i samtals 86 moskitobit og komst ad thvi ad hun er einmitt med ofnaemi fyrir theim! Gekk hun um med kalfa eins og filamadurinn i nokkurn tima thangad til hun for inn i apotek thar sem afgreidslustulkan hropadi upp yfir sig og retti henni baedi smyrsl og toflur sem gerdu hreint kraftaverk! I framtidinni verdur hun duglegri med flugnafaeluna ;)
I gaerkvoldi akvadum vid ad fara i hreinraektada turistabatsferd um eyjarnar i kring sem kalladist The original sunset tour. Thetta var hin agaetasta ferd thar sem vid saum fullt af opum, strondina thar sem myndin The Beach var tekin (hvitasti sandur og hreinasti sjor sem vid hofum nokkurn timann sed), snorkludum med litrikum fiskum og forum a kajokum inn i rosalega fallega djupa vik. Ad visu var solarlagid ekkert serstakt vegna thess ad tha voru komin sky en vid forum samt mjog sattar og saltar fra bordi. I dag klaradi Matta loksins kofunarprofid sitt med glaesibrag a seinustu minutu vegna thess ad klukkutima seinna vorum vid komnar um bord i batinn sem for med okkur aftur til Krabi thar sem vid aetlum ad vera i tvo daga adur en vid holdum til Kambodiu.
Planid er ad sola okkur adeins betur og fara a sjokajak og filsbak a morgun. Adeins ad hreyfa a okkur rassinn adur en rutuferdin langa til Bangkok hefst :)
Okkur lidur ekkert sma vel herna i Taelandi og hlokkum til ad takast a vid framhaldid. Sjaumst fljott!
Kv. Matta og Stella
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

4 comments:
Kæru stöllur,eða stellur,ég sá myndina the Beach á sínum tíma en ég man nákvæmlega ekkert eftir söguþræðinum, eina sem ég man er kletturinn og sjórinn sem þið talið um,litirnir í landslaginu voru eins og í amerískum sunnudagaskólamyndum,ótrúlegt. Mikið hlýtur þetta vera stórkostleg upplifun hjá ykkur, ég hlakka til að skoða myndir þegar þið komið heim. Nú erum við bara þrjú heima, ég og strákarnir, búin að þrífa,skreyta jólatréið og erum hafa það kósý,við skrifum aftur þegar jólin eru gengin í garð. Bestu kveðjur Hildur og hobbitarnir,p.s.Halli vill koma því á framfæri við Möttu sína aðhún sé besta frænkan
Gleðilega jól, kæru Heimsálfar!
Hér er snjór og hálka - algjör sæla! Og alveg að koma jól hér á klakanum. Vona að þið eigið gleðileg jól, hvar sem þið verðið staddar í heiminum. Jólaknús úr Hoffelli - Sigrún og co.
Vááááá.. Sweet :D Hafið það sem allra best skvísur og njótið sólarinnar! Hér er allur jólasnjórinn á brott og burt og hefur verið brjálaður vindur og óveður síðustu 2 daga. En við höldum í vonina :)
Gleðileg jól stúlkur mínar, ég get ekki beðið að hitta ykkur!
Kveðja,
Sara Lillý
Elsku Matta, gleðileg jól fína og fallega frænka, við söknum þín náttúrulega ferlega í dag, Halli Bolli er að horfa á jólabarnadagskrána í sjónvarpinu,Jónatan er að bjástra með eitthvert dót, Heimir er að drekka kaffi í morgunsloppnum hans afa Bolla og ég er að hugsa um að fara út að hlaupa svo ég geti borðað með góðri samvisku í kvöld. Njóttu lífsins,þitt fólk í Laugarásnum, p.s. mega jólakveðjur til Stellunnar.
Post a Comment