Fyrir þremur dögum keyrðum við í rúma 2 tíma að Kínamúrnum, við vorum með einhverjum kínverskum hóp og það var kínverskur fararstjóri með okkur sem bókstaflega gargaði í míkrafóninn allan tímann á kínversku! Hún nánast andaði ekki á milli. Þegar að Kínamúrnum var komið röltum við aðeins upp hann og fengum okkur svo nesti uppá toppi. Þetta fannst kínverjunum alveg ótrúlega merkilegt og hópuðust heilu fjölskyldurnar og hóparnir fyrir framan okkur til þess að taka af okkur video og myndir að borða. Það var gaman að sjá þetta ótrúlega mannvirki með berum augum.
Í fyrradag fóru Hrafntinna, Sigurrós og Kristína að sjá summer palace

2 comments:
Gaman að fylgjast með ykkur á ferðalaginu - og til hamingju með afmælið í dag Stella Rún
kveðja
Nína
Elsku Stella Rún. Til hamingju með afmælið í dag! Skemmtið ykkur vel á ferðalaginu:D
Kveðja, Malla, Hafsteinn, Ylfa og Ásta Brá
Post a Comment