Við heimsálfar erum nú búnar að vera í Xiamen í fimm daga og líkar virkilega vel. Við komum hingað úr kuldanum í Peking, fengum vægast sagt höfðinglegar móttökur og erum búnar að lifa eins og blóm í eggi síðan. Annan daginn okkar í Xiamen fórum við út á eyjuna Gulanjú (ætla ekki einu sinni að reyna að stafa þetta rétt) þar sem við komumst sko aldeilis í feitt. Þar er nefnilega hægt að kaupa "ekta" fake á mjög hagstæðu verði og erum við því núna vel settar hvað varðar úr, perlur og fleira ;o) Hann Arnar sem er búinn að vera með okkur hér fær þolinmæðisverðlaun ferðarinnar enda búinn að fara í verslunarleiðangur með sex stelpum! Og hann lét sér hvergi bregða heldur aðstoði okkur í prúttinu, enda kann hann talsvert meiri kínversku en við.
Fimmtudagurinn var svo afmælisdagur Stellu og það verður að viðurkennast að morgunverðar-surprisið heppnaðist aðeins betur hér en á Indlandi þegar Hrafntinna átti afmæli. Afmælisbarnið var vakið með fögrum söng og kerti til að blása á. Svo var bundið fyrir augun, sem er orðin hefð hér með, og hún leidd niður í eldhús þar sem beið fallega framsett morgunverðarborð með hafragraut, niðurskornum appelsínum, brauði með súkkulaði o.fl o.fl. Vill afmælisbarnið hér með koma á framfæri þakklæti fyrir þetta ;o) Frábær leið til að vakna á 20 ára afmælinu!! En okkur var ekki til setunnar boðið, allavega ekki mjög lengi vegna þess að við ætluðum okkur að fara í spa og gera vel við okkur. Arnar var aftur með í för, enda orðinn ómissandi hluti hópsins núna og hann teymdi okkur í Hot Springs, virkilega flott spa. Þar böðuðum við okkur í hinum ýmsustu heitu pottum, m.a. kaffipotti, green tea potti, karrýpotti, rauðvínspotti og síðast en ekki síst fiskipotti. Í þeim potti voru þúsundir lítilla fiska sem nærast á dauðum húðfrumum og var það vægast sagt mjög eftirminnileg reynsla að liggja í heitum potti og láta fiska bókstaflega éta sig. Sumar okkar splæstu svo á sig nuddi á meðan aðrir lágu á heitum steinum með teppi og blunduðu. Þennan dag enduðum við svo á íslenskum veitingastað í Xiamen sem heitir Heima þar sem við fengum frábæran mat, góða þjónustu og live tónlist.
Annars höfum við tekið lífinu hér með ró, enda fallegt umhverfi og góður félagsskapur það sem skiptir mestu. Annað kvöld er stefnan svo sett á Hong Kong með næturrútu þar sem við ætlum að vera í örfáa daga, fá kannski smá jólaskap í æð. Hvert ferðinni er heitið eftir það er enn í smá óvissu en við erum bjartsýnar á framhaldið og lífsglaðar sem aldrei fyrr ;o)
F.h. Heimsálfa
Hrafntinna og Stella Rún
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

10 comments:
Vá hljómar æðislega. Ohh ótrúlega fallegar myndir frá Kína á facebook. Farið vel með ykkur stelpur og sakna ykkar :)
ykkar vinkona, Sara Lillý
Haha blóm í eggi... er það málið í dag?
Ég trúi ekki að þið hafið farið í þessa legendary fiskasnyrtingu!
Jæja Matta og heimsálfarnir hinir. Vitiði að Víetnam er málið! Hún mamma þín hitti góð hjón sem eru nýkomin frá Vietnam. Þau segja að þar sé allt miklu ósnortnara en í Tailandi og fegurra en í Kambodíu. Nú viljum við bara efna til atkvæðagreiðslu hér á heimasíðunni í þessu stóra máli. Hér berast fjögur atkvæði frá Selvogsgrunni 6. Fjögur Vítetnam-atkvæði!
Bjarni Möttupabbi
Eru Færeyjar ekkert inn í myndinni? Bestu kv Hildur Möttumóða
Vá, má ég fá heimilisfangið hjá þessu Spa dæmi? Hljómar eins og algjör snilld! Gaman, gaman að lesa, takk fyrir að vera svona duglegar að skrifa! Ég ætla ekki að blanda mér í ferðaáætlunina ykkar og skila því auðu!
Góða skemmtun - Sigrún.
hæ hæ
Er ekki bara Ísland málið?
Ferðamenn segja að hér sé gott að vera og allt svo ódýrt og ekki verið að sulla mati í spa-ið.
Víetnam hljómar vel og síðan þaðan beint á kunnari slóðir.
Farin að sakna ykkar mikið og verð hræddari og hræddari um ykkur því lengur sem líður.
3 atkvæði frá Sporðó!
mamma
Ég átti vin sem fór í svona fiskabað í Suður-Ameríku. Fiskarnir nörtuðu fyrst svona blíðlega í hann, en gerðust svo sífellt aðgangsharðari og enduðu með því að rífa hann í sig. Þetta reyndust vera Piranha-fiskar af hættulegustu sort.
Óskar Freyr, hvíl þú í friði, kæri vinur.
Til hamingju með afmælið um daginn Stella!
Ég hef aðeins verið að fylgjast með ykkur! hugurinn ber mig hálfa leið, á meðan ég tel niður dagana í mína reisu:D
En við ákváðum að skella okkur og leggjum í hann 5.jan. Hvernig endast dollararir hjá ykkur? Hafið þið eitthvað prufað kortin ykkar úti?
kveðja Elísabet Svönudóttir
farfuglar.bloggar.is
Bíð spennt eftir nýrri færslu, kíkji liggur við á klukkutímafresti:S, þetta er svo spennó hjá ykkur!! En það er nú farið að styttast í ykkur!!
Saknaðar kveðjur:)
Þórhildur (Frosti og Steini biðja að heilsa)
Post a Comment