Vid erum allar saman astfangnar og tha ekki af ollum frambaerilegu monnunum sem vid hofum kynnst i thessari ferd heldur af Nepal. Vid eyddum fyrstu tveimur dogunum eftir rutuferd daudans i Kathmandu. Svafum ut fyrri daginn og skiptum svo lidi i margvislegar skodunarferdir og komumst ad thvi ad her a madur a gira sig upp af gongubunadi. Mikid urval af baedi ekta og ekki-svo-ekta merkjavoru a fraberu verdi og gripu sumar okkar taekifaerid. Vid thurftum svo sannarlega a rolegum degi ad halda, enda heilsa akvedinna heimsalfa ekki alveg i toppstandi. Allar erum vid samt bunar ad na godri heilsu a ny.
Seinni part thessa dags hittum vid svo bjargvaett Nepal-ferdarinnar, hann Arjun, sem Hrafntinna kom okkur i samband vid i gegnum sambond heima a Islandi. Hann er sko aldeilis buinn ad gera vel vid okkur. Hann reddadi okkur bilstjora fyrir skodunarferd sem vid forum i i gaer um hina fornu menningarborg Bhaktapur. Svo fengum vid ad gista a gistiheimilinu hans sem er thad allra kruttlegasta sem vid hofum komist i taeri vid, otrulega heimilislegt og kosy enda heitir thad Family Guesthouse. Ekki nog med thetta allt saman heldur baud hann okkur i svakalega matarveislu med fjolskyldu sinni thar sem vid fengum fjolda gomsaetra japanskra retta.
Nu erum vid komnar til Phokara og reynum ad venjast thynnra lofti svo vid verdum tilbunar i slaginn a morgun en tha forum vid i tveggja daga ferd upp i fjollin. Vid hlokkum ekkert sma til enda lofar fjallasynin mjog godu. Annars skal thad tekid fram ad rafting er dottid upp fyrir. Hann Arjun einmitt radlagdi okkur fra thvi, svo foreldrar thid getid andad lettar.
Kaer kvedja
F.h. heimsalfa
Stella Run og Matta
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

12 comments:
Elsku alfar.
Gott ad fretta af ykkur og ad adbunadurinn fer batnandi. Oska ykkur godrar fjallgongu og njotid lifsins. Allir bidja ad heilsa. Serstakar grisa- og saknadarkvedjur til Stellu Runar fra Raudalaeknum. Amma Sae bad lika fyrir serstakar kvedjur og sms-thakkir, taeknitrollid sjalft ;-).
Kæru kvinnur, gott að heyra svona reglulega frá ykkur, nú væri bara gaman að fara að sjá myndir líka, það er varla að maður trúi því að þið séuð á svona fjarlægum slóðum, þið verðið að sanna að þið séuð ekki bara á Ibiza að drekka mojito á froðudiskói. Annars eru bara allir glaðir í sinni hér á þessu guðsvolaða landi, megi farsæld og friður fylgja ykkur, Hildur Möttumóða.
Elsku stelpurnar mínar gott að heyra að allt gengur vel. Amma Matta og Amma Inga byðja að heilsa.
þúsund kossar
Ragga Sigurrósarmóða.
Jæja, þar sem plottið með Fannari Þór er víst ónýtt, þá get ég allt eins skrifað í eigin nafni.
Gaman að heyra að þið getið keypt ALVÖRU útivistarbúnað á góðu verði. Ég mæli sérstaklega með Morth-Face, Farrimor og svo eru Fatagonia líka með topp vörur. Já, eða ekki...
Passið ykkur svo á snjómanninum ógurlega, hann er sérlega gefinn fyrir norrænar stúlkur í kringum tvítugsaldurinn.
Yndislegt að lesa bloggin ykkar :)
Er ekki kominn tími á myndir? eða er það erfitt á netkaffihúsunum?
Kveðja
Brynjar Sigurrósarkærasti
Gaman að lesa... njótið Nepal og alls hins ótrúlega sem fyrir augu ber. Knús Sigrún og co í Keflavík.
Við styðjum tillögu Hildar Möttumóðu og tökum undir grunsemdir hennar. Hver segir að þið séuð ekki á Ibisa? Hvað vitum við um þessar sögur nema þetta sé bara allt sett saman í einhverju Sangríja-rússi og fyrirhuguð rafting ferð sem BLESSUNARLEGA er ekki lengur á dagskrá hafi bara verið rennibrautagarður?? Við viljum sjá myndir!
Bjarni og Jóna Hrönn
Sælar stúlkur, gaman að heyra að allt gengur vel. Það verður spennandi að heyra af fjallgöngum álfana. Vona að ströng þjálfun skili sér á morgun.
kveðja, Aggi Snædísar pabbi.
Ps. Snædís ég er ekki að fara að setja upp facebook en mailið er ajg@internet.is
Elsku ferðaálfar,
Dauðöfunda ykkur að krúttlegu gistihúsi í fjöllum Himalaya. Skil ekkert í ykkur að hafa ekki leyft mér að koma með ;-) Ég sit nú hér yfir misskemmtilegum Asset pricing case-um og hugsa til ykkar. Ég virðist hafa verið eina foreldrið sem fannst rafting eitthvað spennandi - skammast mín pínu fyrir það. Mér fannst þetta bara sjálfri svo skemmtilegt í Hvítá hér á Íslandi, en þetta er kannski pínu hrikalegra í Himalaya. Hlakka til að heyra frá ykkur aftur og styð myndaupphleðslu á síðuna. Þó ekki væri nema eina mynd. Hvernig er veðrið þarna hjá ykkur í Himalaya. Hvað eru þið hátt yfir sjávarmáli? Geri mér enga grein fyrir hvar þið eruð þarna í fjöllunum. saknaðarkveðja frá mömmu á Sporðó.
p.s. Mamma segir hvar Snædís sé: í hæsta fjallgarði heims. Egill segir: vonandi dettur hún ekki.
hæ dúllur! Gaman hvað þið eruð duglegar að blogga og gott að allt gengur svona vel! knús og kossar til ykkar allra mmmswa!:* Sakn! sakn!
Vid erum svona 1500m yfir sjafarmali og forum eitthvad um 2000m tharna i fjallgongunni...s.s.engin haetta a hafjallaveiki:) solid.
Great and that i have a neat supply: What House Renovations Need Council Approval house remodel before and after
Post a Comment