Vid forum a netkaffi i dag og saum frettirnar med Thailand. Svo allir geti verid rolegir tharna heima tha erum vid ad vinna i ad breyta flugmidunum til ad sleppa vid oeirdirnar. Okkur finnst stundum eins og thad se verid ad reyna ad berja thessa heimsreisu nidur med heimskreppu, ofbeldi og rutuslysum. Vid haettum okkur varla inn a mbl lengur thvi thad bregst ekki ad thad komi einhver midur skemmtileg frett um gengi eda gislatokur. En vid gefumst ekki upp!
A morgun stefnum vid a Kinamurinn og leggjum snemma af stad. Hlokkum mjog til ad sja thad risa mannvirki.
I kvold aetlum vid ad slappa af upp a hotel herbergi eftir goda KFC maltid (vonandi an matareitrunar). Misstum okkur svolitid i Mc Donalds is med sukkuladi sosu svona eftir oll hrisgrjonin.....namminamm.
Myndirnar koma vonandi inn fljotlega eftir ad vid komum til Xiamen, tvi thad er ekki haegt ad tengja myndavelarnar okkar her.
Bestu kvedjur a klakann
Fyrir hond heimsalfa, Snaedis
Eitt rad til theirra sem ferdast. Vid erum bunar ad uppgotva nyja adferd til ad sla i burtu gotu solufolk (sem okkur hefur einmitt langad til ad berja stundum). En thad er einfaldlega ad segja: "Vaaaa.....vaaaa, I give you 200 yuen" fyrir eitthvad drasl sem kostar svona tifalt minna. Thetta hefur virkad i hvert skipti nuna :)

5 comments:
Hæ hæ. Það eru mjög hörð mótmæli í Thailandi sem virðast jafnvel ætla að leiða til borgarastyrjaldar og í fréttablaðinu í dag er greint frá því að ferðamönnum sé ráðlagt að fara ekki þangað, ferðamenn eru jafnvel fastir í landinu og evrópsk flugfélög eru á leiðinni að sækja landa sína, þið verðið að skoða þetta elskurnar mínar, bestu kveðjur Hildur Eir
Sko, að fara alla leið til Kína og fá sér KFC og McDonalds í svanginn er langsótt. Þetta má snæða inni í Sogamýri í Skeifunni. Í Kína er hægt að smakka margt framandlegt með hrísgrjónum, látum samt hundakjöt liggja milli hluta. Stór hluti af ævintýrinu er maturinn. Ólíklegustu staðirnir koma yfirleitt mest á óvart. Farið samt varlega garpar.
Kær kveðja Jón G.
Nihau kraftmiklu ferðagarpar!
Gott að heyra að þið fylgist með heimsfréttum. Það er víst á ýmsu von á þessum óvissutímum í heimsfjármálunum. Þið eruð skynsamar og ég treysti því að þið finnið eitthvað annað spennandi að skoða en Thailand.
Mér var ráðið frá kjúklingastöðum í Kína. Hélt ég hefði varað ykkur við. Víst margir sem hafa krækt sér í matareitrun þaðan. Myndi frekar velja PizzaHut eða McDon. ef þið freistist í Evrópska stemmingu. Síðan eru hrísgrjónin víst langt frá því að vera aðalmaturinn í Kína. Eingöngu notað sem uppfylling eftir matinn, þess vegna eru hrísgrónin aldrei borin fram nema í lok máltíðar. Mæli með góðum hotpot stað og tásunuddi. Fullt af mismunandi matarmenningu allt frá því hvort það er Cantonese, Shangdong, Sichuan eða Huaiyang héruðunum. En í Peking verðið þið að smakka Peking öndina (picking dug, eins og þeir segja)!! Ef þið fáið matareitrun, þá bara beint á sjúkrahús - ekkert flókið.
Hálföfunda ykkur af þessu og fáið ykkur einn bing pichjou ba, fyrir mig !! ;-)eða bing swei fyrir ykkur sem eruð í óáfengu ;-)
Hlakka til að heyra meira og auðvitað að fá myndir.
Ásta mamma
Eg er viss um að Snædís er hissa á ömmunni að hafa ekki skellt sér í umræðuna.
Hér er beðið eftir að lesa bloggin ykkar sem alltaf eru jafn skemmtileg og spennandi. Heldur hrollvekjandi þegar þið voruð á leið í leigubílnum og allar komnar í varnarstöður með alls konar hættulegum vopnum! En stelpur mínar, haldið þið að það hafi dugað?
Ég hef nú nokkrum sinnum efast um að þið væruð á þessu ferðalagi og vitið þið hvers vegna. ENGAR MYNDIR. En nú skil ég hvað er í veginum og hlakka einhver ósköp til að sjá margar myndir.
Snædís: Bökuðum laufabrauð í gær og gekk bara ágætlega þótt þig hafi vantað.
Kveðja, amma Kittý
Sælir ferðalangar - nú eru jólin að koma hér í norðri, myrkur, kuldi og ís... og alveg hellingur af jólaseríum til að lýsa upp skammdegið. Ferlega kósý! Ég var búin að gleyma hvað Íslendingar eru ljósaglaðir, enda búin að vera úti í Dk í svo mörg ár. En þetta er bara huggulegt. Vona að þið sogið til ykkar jólasiði annarra landa, þeas ef þið komið í land sem halda heilög jól - maður má víst ekki gleyma Búdda og öllum hinum :) Góða ferð og ég hlakka líka til að skoða myndir.
Knús úr Kef.. .Sigrún.
Post a Comment