I gaer lentum vid ferdalangarnir i Delhi thar sem maettu okkur beljur, filar og brosandi born. Thetta er buid ad vera otrulegt aevintyri og thvilikt menningarsjokk. Alveg hreint otrulegt hvernig folk lifir i thessu landi. Allt er skitugt, ollum finnst vid vera hipp og kul og vilja helst hafa okkur i fjolskyldu albuminu. Ef vid verdum uppiskroppa med aura tha munum vid klarlega taka modelgjold:)
Nuna erum vid bunar ad skipuleggja alla Indlandsferdina, thad gerdum vid a godri ferdaskrifstofu og thad kostadi 30 thus (med ferdum, gistingu, skodunarferdum, morgunmat ofl). A morgun kl;7 leggjum vid af stad til Jaipour thar sem vid munum gista i tvaer naetur. Sidan liggur leidin til Agra a afmaelisdegi Hrafntinnu thar sem vid gistum i eina nott, enda ekki mikid annad ad sja en Taj Mahal. Thar naest tokum vid naeturlest til Varanasi, gistum tvaer naetur thar og tokum svo rutu til Kathmandu. (snaedis)
Ferdin hefur gengid otrulega vel en to ekki alveg snudrulaust. Thad var t.d. ekkert skemmtilegt thegar Stella komst ad thvi i London ad flugmidarnir voru a bak og burt. En thad reddadist allt saman, gatum fengid prentada nyja mida hja Virgin Atlanta a Heathrow. En i ollu stressinu skildi hun svefnpokann sinn eftir hja Freyju, thar sem vid gistum, svo mamma ef thig vantar svefnpokann tha er hann a Pembroke Road.
Ollum lidur vel og Hrafntinna er med neydarhnappinn!!
Knus a alla fra Indlandi

9 comments:
vá! Hver er þessi Raszhgad? Vona að hann sé algjört rassgat. alla vega ekki asshole ;-)
Gaman og gott að heyra frá ykkur hljóðið frá landi kúa og fíla og að ykkur hafi tekist að leysa vel úr óvæntum uppákomum.
Held ég sé ekki eina foreldrið sem er með smá eftirásjokk hér og bíð því spennt eftir fréttum frá næsta áfangastað. Kannast reyndar vel við þennan áhuga hjá Kínverjum að vilja hafa mann með inn á myndum. Við erum enn pínu sjaldséðir furðufuglar í þessum löndum. Góða ferð. kv, Ásta
Gott að heyra að allt er skipulagt og að Stella Rún er lík sjálfri sér og skyld móður sinni ;-) Góða skemmtun og farið varlega.
hæææ SÆTU!!!! gaman að heyra frá ykkur maður..bara komnar til India væri alveg til í að skipta við ykkur sit hérna í grámyglunni að læra lífefnafræði ekkert smá mikið fjööör;)en skemmtið ykkur ótrúlega vel i know u will og í guðanna bænum fariði nú varlega!! kossar og knús á ykkur allar með tölu:* nama sta
frábært að allt er komið ferðagírinn, hlakka til að sjá meira bloggað,,
kveðja ásgeir
ágætu ungu konur.
Þið vitið ekki hvað þetta hefur róandi áhrif á foreldra ykkar að fá að lesa þetta. Blóðþrýstingurinn lækkar og við verðum léttari í spori.
Hlökkum til framhaldsins!
Bjarni Möttupabbi
Frábært að lesa að allt gangi vel.
Brynjar Þór Sigurrósarkærasti
Frábært að heyra að allt gengur vel.
Vá vildi að ég væri í heimsreisu!! Hafið það gott stúlkur!! Til hamingju með afmælið á morgun Hrafntinna ;)
kv. Sara Lillý
Elsku Matta, ég er kannski eilítið móðursjúk móða en mér fannst líða heldur langur tími uns frá ykkur heyrðist, þú veist hvernig við erum Matta mín :) annars er frábært að heyra hversu vel þið hafið skipulagt ferðina um Indland, þið fáið örugglega meira útúr henni fyrir vikið, spurning samt hvort Stella ætti ekki að vera með neyðarhnappinn svo hún týnist ekki í ástarhofinu, Guð blessi ykkur af því að Ísland er hvort sem er farið í rassgat. Kv Hildur frænka
Post a Comment