Vid erum komnar til Agra nanast til thess eins ad sja Taj Mahal, her er vist ekki mikid annad. Vid erum a enn einu hotelinu en thar munum vid gista med maurum. Thad finnst okkur samt mun skarra en bilstjorinn okkar sem vill giftast Mottu. Gaf henni lokkandi tilbod hvad indversk brudkaup vaeru aedisleg og mikil fest og baudst til ad byggja nyja taj mahal. Vid erum nu i borg astarinnar svo hver veit hvad Matta akvedur. En svona an grins finnst okkur hann ordin svolitid pirrandi eins og their eru nu flestir herna og laesum okkur inn a herbergi klukkan sex a kvoldin og forum ad sofa svona um tiu :)
Thad eru fjorir dagar eftir her a indlandi og tha erum vid komnar til Nepal sem er vist mun rolegri stadur, vid hlokkum til thess.
I dag satum vid adallega i bil og erum ad akveda hvort vid aetlum ad borda heitan mat i kvold. Lysandi setning ferdarinnar var i bilnum fyrir nokkrum dogum thegar snaedis sagdi: "Stelpur, hvenaer aetlum vid ad borda....i dag eda kannski bara a morgun?" haha tha vorum vid bunar ad borda svolitid mikid af bonunum. Haegdir og kukur eru lika mjog vinsaelt umraeduefni...enda skiptir thetta allt miklu mali.
I bilnum a leidinni tha komumst vid ad enn einu skemmtilegu um indverska umferd. Her er folk ekki mikid ad fara eftir reglum. Thad var verid ad laga akgreinina sem vid attum ad keyra a tha tok bilstjorinn upp a thvi (asamt ollum odrum a gotunni) ad keyra bara a hinni akgreininni, sem sagt a vitlausum vegahelming! Ef odrum i umferdinni fannst vid eitthvad vera nalaegt thvi ad klessa a tha splaestu their i sma blikkljos til ad fordast arekstur. Vid heldum nidur i okkur andanum a medan, enda ekki annad haegt ad gera thegar konur skipta ser ekki af akstrinum her. Stella mun ekki kvarta undan akstri Asgeirs framar og Snaedis mun liklega halda kj med Albert undir styri framvegis.
Jaeja, ekki meiri timi a thessu netkaffi svo vid verdum ad kvedja ad sinni
En ollum lidur storvel, enginn med i maganum og mikid um hlaturskost og skemmtilegheit. (Bilstjorinn helt vid vaerum a mariuna) haha
Kvedja,
Snaedis
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

11 comments:
Haha algjör snilld að lesa blogið ykkar! Ekkert smá mikið ævintýri!! Stórt knús til ykkar allra! ;) ;*
ykkar Edda
Hey matta þessi leigubílagaur ætti nú bara að róa sig:)
Fylgist með ykkur.
Hjúkk!
Ég var búinn að gúgla upp alla sem heita Fannar Þór og reyna að átta mig á þessum dreng.
Við sitjum hérna foreldrar Möttu ástamt Bræðrum hennar og mágkonu. Var búinn að finna einhvern myndarlegan handboltastrák sem les ekki bækur og horfir á lélegar bíómyndir. Var orðinn frekar stressaður yfir þessu, verð að viðurkenna það. Nú afhjúpast að þetta er Andri stóri bróðir. Ég er búinn að veita honum þungt högg í kviðinn, hann gerir þetta ekki aftur.
Bjarni Möttupabbi
Alltaf jafn gaman að heyra frá ykkur. Við Egill liggjum hér upp í rúmi, nýkomin úr baði. Ég er að lesa fyrir hann sögur af Snædísi. Segi honum að systir hans sé í landi með úlföldum og fílum. Egill: Úlföldum? Vá, hún verður að passa sig. Þeir eru hættulegir. Eru líka varúlfar þarna? Snædís getur orðið að varúlfi. Já það er ekki öllum sama hér, að vita af þér í landi villidýra, það er nokkuð víst. Bæ Bæ Snædís segir Egill, ég hugsa rosalega vel til þín. Það segir mamma líka, og auðvitað ykkar allra.
kv,
Ásta
:-) Egill vildi bæta við broskalli
haha! sit hérna og hlæ mig máttlausa af þessu bloggi! vá hvað ég vildi óska þess að ég væri með ykkur! haldið áfram að blogg aog endilega setja fleiri myndir inn!:D ást og kossar kv.Lára!:)
Þeir eru merkilega heitir fyrir Möttum, þessir leigubílstjórar, sama hvar í veröldinni þeir eru :)hann hlýtur að hafa verið algjört skeljaskrímsli í útliti þessi konungur sem byggði ástarhofið handa konunni sinni, er þetta ekki talið eitt af sjö undrum veraldar? Eitthvað hefur maðurinn verið að fela. Annars er frábærlega gaman að lesa bloggið ykkar og upplífgandi mitt í þessu krepputali sem suðar í eyrunum allan daginn, KREPPA verður örugglega fyrsta orðið hans Jónatans eða kannski MYNTKÖRFULÁN af því að hann er svo vel gefinn. Guð leiði ykkur og blessi á ókunnum slóðum, munið að vera þolinmóðar og tillitsamar við hver aðra, Hildur Eir Möttumóða.
sælar dömur og þá aðalega tileinkað möttu. það er alveg yndislegt að lesa þessi blogg hjá ykkur því þau eru gefandi og góð. Nú er ég staddur á selvogsgrunni 6 og þykir mér það gott að leggjast til hvílu í góðu rúmi með dýrindis dúnsæng yfir mér og með góðan kodda undir höfði mér, pöddulaust að ég held. Ég ætlaði bara að segja þér frá því að ég og strákarnir gistum í rúminu þínu um daginn og þótti okkur það gott og ég veit að þér finnst það eflaust huggun að ég leyfi þeim að gista þar í fjarveru þinni. Farðu varlega þarna í indlandi og mundu og þið líka stelpur "púngur og hlaupa" það er besta aðferðin og gagnast jafn vel í indlandi og laugardalnum. Kv.Bolli Már Bjarnason.
Hahaha gaman hjá ykkur... þið látið mig bara vita þegar þið komið heim, þá get ég verið með alvöru íslenskan heimilismat tilbúinn handa ykkur - þið eruð nákvæmlega 4 mínútur hingað til mín úr Leifsstöð ;) hehe!
Þú manst það Hrafntinna mín ;)
Verið duglegar að skrifa og njótið lífsins!
Kveðja úr Keflavík - Sigrún.
Vá hvað það er gaman að fylgjast með ykkur. Sakna ykkar og væri ekkert smá til í að vera með ykkur í öllum þessum ævintýrum og hlátrasköllum. Skemmtið ykkur vel sætu skvísur
Hvað eruð þið búnar að vera þarna, í viku? Og strax byrjaðar að væla? Hehe...Stefán ætlar ekki að lesa bloggið aftur eftir síðustu færslur. Elskulegar kveðjur úr Vatnaskógi...Betz and Stebz.
Nei, Stefán er samt bara öfundsjúkur ;) Góðar stundir.
Post a Comment