Jæja öllsömul!
Þá höfum við bæst í hóp virkra heimsálfa, lögðum í morgun land undir fót og flugum til hinnar miklu heimsborgar, London. Ferðin byrjaði ágætlega, allavega þegar tárvotar kveðjustundir voru afstaðnar á Keflavíkurflugvelli. Við komumst klakklaust með lest inní borgina og þræddum svo neðanjarðarlestirnar eins og við hefðum aldrei gert annað. Takmarkið var að komast heim til hennar Freyju á 14 Pembroke Road en þar fáum við að gista.
Þar sem Snædís hafði aldrei áður komið til London kom ekki annað til greina en að nýta dagspassann í undergroundið og drífa okkur að sjá Stóra Ben. Hann sáum við og bættum um betur þegar við drifum okkur inn í Parliamentið og hlustuðum á House of Commons ræða einhvers konar heilbrigðislöggjöf. Sem voru viss vonbrigði þar sem að konan sem tók á móti okkur við innganginn sagði að þeir ætluðu að ræða margumtalaða hryðjuverkalöggjöf. En húsið er fallegt og gamalt. Svo sátum við á bekk við Thames og borðuðum hnetur úr plastglasi og drukkum vont flöskuvatn.
Nú er kominn háttatími hjá okkur, enda svefn mikilvægur, sérstaklega þar sem við munum ekki sofa vel næstu nótt. Þá verðum við nefnilega í háloftunum á leið til Delhi.
Okkur líður vel og erum mestmegnis glaðar með lífið.
Knús á alla heima
Matta, Snædís og Stella Rún
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

12 comments:
Frábært að heyra frá ykkur sætu mínar!!! góða ferð Delhi og ég hlakka til að heyra frá ykkur á fjarlægum slóðum :*
Ég er að fylgjast með ykkur...
Getið hver? Hér kemur vísbending: Go Péle!
Góða ferð og fariði nú varlega eins og er örugglega búið að segja við ykkur 100 sinnum :-)
Kv,
Inga Jóna
wazzuppp??? hvað syngur í kjellum? eru ekki allir ferskir kv.bolli ps. er ekki hægt að fá myndir inná eða einhvernveginn afþreyingu?.
oo enn gott að þið eruð komnar heilar á húfi til lundúna!
ég mun klárlega fylgjast með ykkur.. og snædís .. ég veit hvar þú átt heima eheh
stalkerafrænkan
Ég sakna þín Matta. Takk fyrir allar ljúfu stundirnar.
Skemmtið ykkur vel, ég fylgist mun fylgjast með ykkur í gegnum öll ævintýrin...Kv Hrafnhildur
Góða ferð !!! I'll miss you!!
Kv. Sara Lillý
Ég mun alveg pottþétt fylgjast með. :) Have fun!
Hæ, hæ
Hlakka gífurlega mikið til að heyra frá ykkur í Dehli dúllurnar mínar.
Hugsa mikið til ykkar.
kv,
Ásta (Snædísar mamma)
Skila kveðju til Benny Lava.. og ykkar auðvitað.. Góðar stundir Kv. Albert
Skemmtilegur gluggi sem við getum fylgst með ykkur í gegnum! og sent skilaboð til baka.Góða ferð til suðurs.Leiðin er björt. Hlakka til að heyra meira. Kær kveðja Möttuamma
Post a Comment