Tuesday, December 2, 2008

Íslenskt heimili í Kína :)

Þá erum vid heimsálfarnir komnir inná íslenskt heimili i Xiamen. Hjá vinafólki Kalla og Esterar og frændfólki Möttu. Hérna er ótrúlega fallegt og erum við alveg við ströndina. Það er alveg frábært að fá að vera hérna eftir allt þetta ferðalag um Indland og Nepal. Við komum seinni partinn í gær og erum bara búnar að taka því rólega í dag, kíktum aðeins niður á strönd, sóluðum okkur og busluðum í sjónum. Hérna er um 20 stiga hiti og sól, mjög nice að þurfa ekki að vera í 4 peysum og föðurlandi í ískulda. 

Fyrir þremur dögum keyrðum við í rúma 2 tíma að Kínamúrnum, við vorum með einhverjum kínverskum hóp og það var kínverskur fararstjóri með okkur sem bókstaflega gargaði í míkrafóninn allan tímann á kínversku! Hún nánast andaði ekki á milli. Þegar að Kínamúrnum var komið röltum við  aðeins upp hann og fengum okkur svo nesti uppá toppi. Þetta fannst kínverjunum alveg ótrúlega merkilegt og hópuðust heilu fjölskyldurnar og hóparnir fyrir framan okkur til þess að taka af okkur video og myndir að borða. Það var gaman að sjá þetta ótrúlega mannvirki með berum augum.

Í fyrradag fóru Hrafntinna, Sigurrós og Kristína að sjá summer palace

2 comments:

Anonymous said...

Gaman að fylgjast með ykkur á ferðalaginu - og til hamingju með afmælið í dag Stella Rún
kveðja
Nína

Anonymous said...

Elsku Stella Rún. Til hamingju með afmælið í dag! Skemmtið ykkur vel á ferðalaginu:D

Kveðja, Malla, Hafsteinn, Ylfa og Ásta Brá